Yfirlit um félagið
Félagið, Búgarðabyggð ehf, kt. 530306-1270. var stofnað 2006, í þeim tilgangi að skipuleggja. þróa og selja nýstárlega búgarða og smájarðir í Sveitarfélaginu Árborg.
Hluthafar Búgarðabyggðar ehf eru tvö hlutafélög, Árfoss, kt. 451184-0249, og Kallnesingur kt. 711005-1610. Eigendur Árfoss ehf eru Gísli Ágústsson og Jón Árni Vignisson húsasmíðameistarar og hafa þeir áratuga farsæla reynslu af mannvirkjagerð og skipulagningu íbúðahverfa. Eigendur Kallnesings ehf eru Guðrún Gaukssdóttir kennari í eignarrétti við Háskólann í Reykjavík og Jörundur Gauksson lögmaður.
Eigendur stunda jafnframt búskap á jörðum sínum á Suðurlandi.
Allir framangreindir sitja í stjórn Búgarðabyggðar ehf en Jörundur Gauksson er formaður stjórnar og framkvæmdaarstjóri.
Öllum fyrirspurnum er svarað eins fljótt og kostur er og við mælum með að okkur sé sendur tölvupóstur.
Sími: +354 8920372, jorundur@logbyli.is
Félagið á tvö verðmæt landssvæði í Árborg.
Annars vegar er um að ræða búgarðabyggðina Tjarnabyggð sem telur 359 lóðir á tæplega 600 hektara svæði 4 km frá Selfossi. Lóðir þar eru 10.000 - 60.0000 fm að stærð
Hins vegar 160 hektara land, Eystra-Stokkseyrarsel, sem skipt hefur verið í 21. spildu sem hver er 50.000 - 120.500 fm að stærð.

Hluti af 8 km reiðstíg sem kominn er í Tjarnabyggð en hann verður 16 km

Hestar á beit í Tjarnabyggð en þar nýtur fólk kosta sveitalífs.
Um eignirnar
Tjarnabyggð
- 359 lóðir og þar af búið að leggja vegi og lagnir að 225
- Vegir, reiðstígar og lagnir komnar í 1 til 3. áfanga af 6.
- Hönnun á vegum og reiðstígum og lögnum í öllum 6 áföngunum, þ. á m. ljósleiðara og hitaveitu
- Samþykkt deiliskipulag fyrir alla áfangana
- Samningar við Sveitarfélagið um þjónustu og veitur sem tekur til allra áfangana, m.a. um skóla og skólaakstur, viðhald vega, snjómokstur, sorphirðu, heitt og kalt vatn.
- Heimasíða og sölukerfi
Eystra Stokkseyrarsel
- 21 lóð.
- Samþykkt deiliskipulag
- Verkfræðileg hönnun á vegum, reiðstígum og lögnum
- Samningar við sveitarfélagið um alla þjónustu eins og í Tjarnabyggð
- Samningar um ljósleiðara og rafmagn



