Búgarðabyggð - einstakt tækifæri til að kaupa skipulagt land smájarða.

Búgarðabyggð ehf hefur til sölu yfir 700 ha af skipulögðu landi á besta stað á landsbyggðinni 60 km frá höfðuðborginni Reykjavík og 4 km frá höfuðstað Suðurlands Selfossi.
Hægt er að semja um kaup á félaginu í heild eða einstökum eignum þess.
Einstök skilyrði eru nú til viðskipta vegna hagstæðs gengis íslensku krónunnar.

Currency converter

ISK

Tjarnabyggð

www.tjarnabyggd.is

Nýjung á Íslandi – þéttbýli í sveit.

Í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins Árborgar hefur verið skipulögð búgarðabyggð sem myndar heildstætt hverfi á um 574,8 hektara landsvæði. Búgarðabyggð er nýjung í íslensku skipulagi sem tryggir íbúum víðtækar heimildir til húsdýrahalds, ræktunar og léttrar atvinnustarfemi.

Tjarnabyggð er heilsársbyggð og kemur öll þjónusta frá þéttbýlinu í Árborg. Árborg sér um viðhald vega, snjómokstur, skólaakstur, sorphirðu og tæmingu rotþróa. Jafnframt tryggja viðkomandi veitur heitt og kalt vatn, lýsingu svæðisins. Ljósleiðarakerfi er notað við fjarskipti.

Framkvæmda og söluferli hefur verið skipt í áfanga, þar sem framkvæmdum er lokið í fyrsta, öðrum og þriðja áfanga og búið að selja yfir 100 lóðir.

Í Tjarnabyggð eru 61 klasi, en hver klasi samanstendur yfirleitt af 6 lóðum.

Klasaskipulagið býður upp á þann möguleika að geta eignast fleira en eina lóð, en með því tryggja íbúar sér enn meira landrými sem og stjórn á því hverjir verða nágrannar síðar.

Í kringum hvern klasa er 5 m breitt belti sem fyrst og fremst er ætlað að tryggja lóðareigendum góðan aðgang að reið- og göngustígum sem eru á svæðinu, en þær eru um 16 km að lengd.

Lóðir eru 359 alls og að meðaltali 14.000 fm að stærð. Byggingareitir eru rúmir og er markaður staður innan hverrar lóðar. Þar má byggja tveggja hæða íbúðarhús með risi og útihús allt að 1500 fm og mikið frelsi er í hönnun.

Söluverð einstakra lóða má finna í verðskrá www.tjarnabyggd.is en upplýsingar um önnur verð gefur stjórnarformaður félagsins jorundur@logbyli.is


Nánari upplýsingar á: www.tjarnabyggd.is