Eystra-Stokkseyrarsel
I.Almennt.
Jörðin Eystra-Stokkseyrarsel er í Sveitarfélaginu Árborg.
Jörðin er 158,9 ha að stærð en hefur nú verið skipt upp í 21. spildu, sbr. staðfestingu landskiptagerðar dags. 22. október 2007.
Spildurnar 21 eru frá 4,7-12,5 ha að stærð eða að meðaltali 7,6 ha.
Eystra- Stokkseyrarsel er í um 6 km fjarlægð frá Selfossi og Eyrarbakkavegur skilur að jörðina og Tjarnabyggð, sem er búgarðabyggð í mikilli uppbyggingu.
II.Deiliskipulag.
Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að byggja íbúðarhús og útihús sem eru samtals allt að 1.800 fm.
Um er að ræða heilsárshús en þó má byggja gestahús eftir reglum um sumarhús.
Samkvæmt deiliskipulagi er hita- og vatnsveita, skólaakstur, sorphirða og tæming rotþróa hjá Sveitarfélaginu Árborg, sbr. einnig samning landeiganda og Árborgar um þessa þætti, dags. 25. mars 2008.

Smelltu á kortið til að skoða nánar
III. Vegir og reiðstígar.
Samkvæmt yfirlýsingu Vegagerðarinnar, dags. 16. janúar 2008, verður hún veghaldari, þ.e. annast viðhald vega og snjómokstur að heimreiðum.
Verkfræðistofa Suðurlands hannaði vegina.
Endurgreiðsla á kostnaði við vegi fer eftir reglum Vegagerðarinnar.
Reiðstígar verða lagðir meðfram vegum skv. deiliskipulagi og reiðleið verður meðfram Flóaáveituskurði skv. aðalskipulagi Árborgar.
Samkvæmt samningi landeiganda og Árborgar leggja landeigendur reiðstíga í samræmi við deiliskipulag en Árborg tekur síðan við þeim og annast viðhald þeirra. Landeigendum er heimilt að lýsa upp reiðstígana en Árborg mun annast rekstur og viðhald.
IV. Hita- og vatnsveita. Samkvæmt skipulagi annast Árborg rekstur hita- og vatnsveitu í Eystra-Stokkseyrarseli. Um framkvæmdina liggur fyrir samningur milli landeiganda og Árborgar, dags. 25. mars 2008. Samkvæmt honum leggja landeigendur hita- og vatnsveitustofna en í staðinn mun Árborg heitt og kalt vatn frá stofni að húsum án endurgjalds.
Gjald fyrir notkun vatns fer eftir gjaldskrá Árborgar.
V. Rafmagn Rarik mun annast rafveitu, sbr. yfirlýsingu dags. 09.04.2008
VI. Fjarskipti. Með yfirlýsingu, dags. 17. mars 2008, staðfesti Síminn að það muni verða lagður ljósleiðari í Eystra-Stokkseyrarseli.
VII. Söluverð. Nánari upplýsingar jorundur@logbyli.is


