Búgarðabyggð - einstakt tækifæri til að kaupa skipulagt land smájarða.

Búgarðabyggð ehf hefur til sölu yfir 700 ha af skipulögðu landi á besta stað á landsbyggðinni 60 km frá höfðuðborginni Reykjavík og 4 km frá höfuðstað Suðurlands Selfossi.
Hægt er að semja um kaup á félaginu í heild eða einstökum eignum þess.
Einstök skilyrði eru nú til viðskipta vegna hagstæðs gengis íslensku krónunnar.

Currency converter

ISK

Iceland – www.invest.is

Friðsælt land og öruggt

Lífskjör góð og auðugar náttúruauðlindir

Milt og tært loftslag og stórbrotin náttúra

Óþrjótandi ferskvatn sem drukkið er beint úr krananum

Jarðhiti til að hita upp íbúðarhús, sundlaugar og heitu pottana heima o.fl.

Græn og næg raforka

Ferðaþjónusta blómstrar enda fjöldi flugferða daglega til Evrópu og Bandaríkjana

Gott heilbrigðiskerfi sem og öll önnur þjónusta

Sveitarfélagið Árborg – www.arborg.is

Öflugt sveitarfélag sem hefur vaxið hratt vegna landkosta og nálægðar við höfuðborgina Reykjavík

Staðsett á Suðurlandi sem er frjósamt landbúnaðarhérað með öflugum laxveiðiám og stórbrotnu landslagi m.a. Þingvöllum, Heklu, Gullfossi og Geysi.

Aðeins 60 km frá Reykjavík og þaðan eru 45 km á millilandaflugvöllinn

Höfuðstaður sveitarfélagsins Selfoss er 4 km frá landinu sem við höfum skipulagt og annast sveitarfélagið alla þjónustu við lóðirnar m.a. skólaakstur, sorphirðu, viðhald vega, raflýsingu, hita og vatnsveitu.

Eignirnar okkar

Um er að ræða tvö verkefni Tjarnabyggð 574,8 ha og Eystra-Stokkseyrarsel 158,9 ha

Lóðirnar eru í fallegri sveit og ligja að bújörðum og fuglafriðlandi sveitarfélagsins á bökkum Ölfusár sem er þekkt fyrir góða sjóbirtingsveiði á stöng auk laxveiði.

Skipulag lóðanna á sér ekki hliðstæðu á Íslandi og gefur það fólki í fyrsta sinn tækifæri til að búa á lóð sem er 1-12,5 ha og njóta friðsældar og möguleika sveitarinnar en hafa alla þjónustu þéttbýlisins auk skólaksturs

Nútímaleg hverfi með ljósleiðara, hitaveitu, skólaakstri og með heimild til að byggja allt að 1.800 fm með útihúsum, auk 16. km af reið- og göngustígum.

Yfir 100 lóðir eru seldar frá því að sala hófs í mars 2006. Fjöldi húsa eru risin eða í byggingu og margar fjölskyldur fluttar inn.

Kaupendur hanna eigin búgarða og hesthús og útihús eru í byggingu.

Búgarðabyggð ehf. á allt landið og selur lóðirnar.

Öll tilskilin leyfi, samningar við sveitarfélagið og aðra um alla þjónustu, verkfræðileg hönnun vega og veitna liggja fyrir.

Stokkskort